Description
GPSMAP® 8416 kortaplotterinn er auðveldur í uppsetningu og í notkun. Tækið er með 10“ full HD IPS glampavarinn snertiskjá sem sést vel á frá hverju sjónarhorni. Það er hægt að setja marga kortaplottera saman í röð ofan í innréttinguna eða ofan á henni. Einnig er hægt að tengja tækið með USB við Windows® eða Mac® stýrikerfi.
Hannaðu þitt kerfi
NMEA 2000 og Garmin Marine kerfin gera þér kleift að hanna þitt eigið kerfi – allt frá radar og sjálfstýringu til myndavéla og dýptarmæla. Öllu þessu er hægt að stjórna frá tækinu og hægt er að deila því til margra skjáa. OneHelm™ kerfið gerir þér svo kleift að samhæfa vörur frá þriðja aðila, t.d. ljósastillingar, við kortaplotterinn svo þú getir stjórnað þeim þaðan.
Tengingar
Það er mjög öflugur örgjörvi í GPSMAP® 8416 kortaplotternum sem að sér til þess að kortið sé teiknað hratt, samskipti séu öflug og margt fleira. Tækið er með innbyggt Wi-Fi sem að hjálpar þér að tengjast ActiveCaptain® appinu sem veitir þér aðgang að OneChart™, snjalltilkynningum1, Garmin Quickdraw™ samfélaginu og fleira. Þú getur einnig tengst GC™ 100 þráðlausum myndavélum og VIRB® action myndavélum. Einnig er í tækinu ANT þráðlaus samskiptatækni sem að gerir þér kleift að tengjast quatix® úrinu, gWind™ Wireless 2 mæli og þráðlausum fjarstýringum.
SmartMode stöðvastýring
Hægt er að tengja sónar, radar, myndavélar og fleira inn á SmartMode stöðvastýringu. Smartmode stöðvastýringin er hönnuð til þess að þú hafir greiðan aðgang að sem flestum upplýsingum á skjánum þínum.
Garmin sjókort ®
Það er hæg að bæta við minni í GPSMAP® 8416 fyrir auka sjókort eins og BlueChart® g3 og BlueChart® g3 Vision. Kortin eru með Auto Guidance tækni sem að gerir tækinu kleift að reikna leið fyrir þig á valinn áfangastað eftir því hvernig bát þú ert á.
Situr við stjórnvölin
Þú þarft ekki að standa fyrir framan tækið öllum stundum. Þú getur stjórnað öllu með GRID™ 20 fjarstýringunni. Á henni er 360° stýripinni með takka sem snýst og gerir þér auðvelt fyrir að velja hluti á skjánum.
Garmin SailAssist
Garmin SailAssist hjálpar þér að taka ákvarðanir með því að sýna þér allar þær upplýsingar sem þú þarft og veitir þér leiðbeiningar í keppni.
ActiveCaptain appið
Þú getur sótt Garmin ActiveCaptain appið í snjallsímann þinn eða spjaldtölvu og þaðan stjórnað og skipulaggt ferðina þína, uppfært stýrikerfi og keypt kort.
1When paired with a compatible smartphone
2Auto Guidance is for planning purposes only and does not replace safe navigation operations