Description
Góð samskipti geta skipt öllu máli úti á sjó. Með VHF 115i geturðu verið í sambandi við einhvern í landi eða við aðra báta á svæðinu. Þannig að þú getur verið í góðu sambandi, sama hvar þú ert og hvert þú ert að fara.
Kemur sér vel í neyðartilfellum
VHF 115i er með neyðarhnappi og 25 watta sendistyrk og veitir þannig mikið öryggi þegar að eitthvað kemur uppá.
Góð í samskiptum
Einföld í notkun og uppsetningu með því að nota NMEA 2000 tengimöguleika. VHF 115i býður uppá Class D DSC möguleika. Talstöðin kemur forrituð með alþjóðlegum siglingarásum. Einnig er hægt að tengja hana með NMEA 0183.
Tengimöguleikar
VHF 115i er hönnuð til að vinna með GPSMAP® 7×2/9×2, GPMAP 10×2/12×2, GPSMAP 7400/7600 og GPSMAP 8400/8600 Kortaplotterum og skjám.