VHF 215i AIS

129.900 kr.

Vertu í sambandi á vatninu

  • Sýnir þér AIS á skjánum á Garmin kortaplotter
  • Standard Class D Digital Selective Calling (DSC) (Sendir neyðarboð með upplýsingum um notanda ef hún er forrituð með MMSI númer)
  • Ef þú lendir í vandræðum getur DSC flýtt fyrir björgun
  • 25-watta sendistyrkur með innbyggðu GPS
  • Forrituð með alþjóðlegum siglingarásum

Available on backorder

SKU: 010-02098-01 Category:

Description

Góð samskipti geta skipt öllu máli úti á sjó. Með VHF 215i geturðu verið í sambandi við einhvern í landi eða við aðra báta á svæðinu. Þannig að þú getur verið í góðu sambandi, sama hvar þú ert og hvert þú ert að fara.

Kemur sér vel í neyðartilfellum

VHF 215i er með neyðarhnappi og 25 watta sendistyrk og veitir þannig mikið öryggi þegar að eitthvað kemur uppá.

Góð í samskiptum

VHF 215i er auðveld í uppsetningu og í notkun og hægt er að fjarlægja míkrafóninn frá stöðinni. Þarft einungis að tengja hana við NMEA 2000 kerfi. VHF 215i býður uppá Class D DSC möguleika. Talstöðin kemur forrituð með alþjóðlegum siglingarásum. Einnig er hægt að tengja hana með NMEA 0183 eða GHS 11i míkrafón.

Tengimöguleikar

VHF 215i er hönnuð til að vinna með GPSMAP® 7×2/9×2, GPMAP 10×2/12×2, GPSMAP 7400/7600 og GPSMAP 8400/8600 Kortaplotterum og skjám.